Lýsing

Ultra Finish 12.000 massinn er fínasti massi sem Cartec býður upp á. Massarnir frá Cartec eru gerðir úr olíum og fráhrindandi micro-ögnum sem gefa einn dýpsta gljáa sem völ er á án þess að mynda hringi og skilja eftir rákir. Ultra Finish 12.000 er ætlað að koma á eftir öðrum grófari massa – ef ætlunin er að gera þetta aðeins í tveimur skrefum mælum við með Compound 5.000 á undan þessum.