Shopping Cart

Sendum allar pantanir yfir 5.000 kr. frítt.

Segway AT5L fjórhjól

Kynningarverð aðeins 1.449.000 m/vsk.

Allir litir til afhendingar strax.
Tryggðu þér hjól sem fyrst!

Aukahlutatilboð! 1.499.000 m/vsk.

Stórt farangursbox að aftan og aksturstölva með fyrir aðeins 50.000 kr. aukalega.

Kópavogur: s. 546 0 415

Akureyri: s. 415 6 415

Til að skoða hjólin í Kópavogi er best að hringja í síma 546-0415 og finna tíma, þar sem ekki er föst viðvera á lagernum.

Snarler AT5 L koma í fimm litum:

Grásvart/blátt
Hvítt/rautt
Svart/grænt
Camo
Orange

Tæknilýsing

T3b dráttarvélaskráning
Hvít númer, tveggja manna

499cc fjórgengismótor, einn sílinder DOHC
39 hestöfl / 44 Nm tog
2WD/4WD hátt/lágt drif 
145 cm. hjólhaf / 25 cm. undir lægsta punkt
Þyngd (með vökvum og fullum tank) 389 kg.
19 l. bensíntankur
25×8-12 framan / 25×10-12 aftan

Öll hjólin okkar koma vel útbúin:
– TBOX búnaður fyrir app fylgir
– Rafmagnsdriflæsingar hringinn
– EPS Rafmagnsstýri

– 12″ áfelgur
– 25″ CST Abuzz dekk
– Diskabremsur hringinn
– Verklegar handahlífar
– Sjálfstæð fjöðrun hringinn
– 1.130 kg. spil og dráttarkúla
– LED ljós og sætisbak

Lítill en öflugur

Í AT5L er 499cc. DOHC mótor sem er einn öflugasti mótor sem í boði er í 500 flokknum. Hann skilar 39 hestöflum og 44Nm togi, sem fer þessari stærð af hjóli vel. 

CVTech skipting

AT5L hjólin koma með sjálfskiptingu á reim frá kanadíska framleiðandanum CVTech. Aflið skilar sér fyrirstöðulaust út í hjól sem skilar sér í mjúkum akstri og minni bensíneyðslu.

Öflug LED ljós

Við tökum öll hjólin inn með öflugum LED ljósum sem lýsa að 400.000 lúmenum. Þau gefa um 60% meiri birtu heldur en hefðbundin halogen ljós og lýsa töluvert lengra. 

Stillanlegt rafmagnsstýri

Í hjólunum er rafmagnsstýri sem aðlagar sig sjálft miðað við aksturshraða og aðstæður, til dæmis hvort hjólið sé í fjórhjóladrifi og læsingum. Þú getur svo valið í appinu á milli þriggja stillinga um það hversu þungt eða létt þú vilt hafa stýrið. 

Hjólið í vasanum

Þú getur stillt hjólið þannig að það virkist aðeins þegar þú nálgast það (bluetooth). Þú getur líka kveikt á kerfinu þannig að þú þurfir ekki lykil á hjólið. 

Allar upplýsingar í símanum

Hjólið skilar gögnum í rauntíma yfir í appið, svo þú getur fylgst með til dæmis togi, nýttum hestöflum og hraða á meðan þú ert í túrnum. Í appinu er haldið utan um keyrða km. Þú getur tengst öðrum Segway hjólum í appinu og fylgst með staðsetningu þeirra á korti.

Diskabremsur hringinn

AT5L koma með diskabremsum allan hringinn. Þannig notar þú aðeins eitt bremsuhandfang eða fótbremsuna til að taka jafnt á öllum hjólum í einu. Hitt bremsuhandfangið er svo hefðbundin handbremsa með vír aftur, sem virkar þá sem neyðarbremsa. 

Mismunadrif framan og aftan

Mismunadrif að bæði framan og aftan gerir hjólin mun mýkri í akstri, léttari í stýri og stöðugri á vegi. Bæði drifin eru svo læsanleg, í sitthvoru lagi að framan og aftan, svo þú getur drifið hvert sem er og losað þig úr öllum aðstæðum. 

Mikill staðalbúnaður

Flottar 12″ felgur

1.130 kg. spil

Stillanlegt rafmagnsstýri

Tenging við app

Öflug LED ljós

100 kg. burðargrindur

Framstuðarar

Diskabremsur hringinn

Mjúkt sætisbak

Dráttarbeisli og rafmagnstengill

Digital skjár

Handahlífar staðalbúnaður

Aukahlutir í boði

Við eigum mikið úrval af aukahlutum til fyrir Segway fjórhjólin.
Þegar þú kaupir nýtt Segway fjórhjól færðu 20% afslátt af öllum aukahlutum og fría ísetningu.

Fjármögnunarmöguleikar

Öll fjármögnunarfyrirtæki lána fyrir Segway.

Almennt er lánað allt að 70-75% af kaupverði án virðisaukaskatts.

Dæmi – algengt lán upp á 800.000 kr. og útborgun þá 649.000 kr. Ef miðað við þriggja ára lán eru meðalafborganir um 27.500 kr. á mánuði, og ef miðað er við fimm ára lán eru þær um 18.500 kr.

Viltu vita meira eða viltu tryggja þér hjól?

Síminn hjá okkur er 546 0 415 í Kópavogi og 415 6 415 á Akureyri. Ef þú vilt tryggja þér hjól eða ert með spurningar er hægt að fylla út formið.