Lýsing
Hópur 1/2 (9 mánaða – 6 ára | 9 kg – 25 kg)
MULTI-TECH II er alhliða bílstóll sem er einstakur að því leiti að hann býður upp á bæði fram- og bakvísandi stöðu allt að 25 kílóum. Stóllinn sem er traustur og einfaldur í ísetningu, býður upp á framúrskarandi hliðarvörn og veitir fyllsta öryggi.
Helstu kostir
Bakvísandi staða í lengri tíma – öruggasti ferðamátinn
Yfirburða vörn – stoðfótur og neðri belti veita aukinn stöðugleika í bakvísandi stöðu
Sveigjanleg staðsetning – ýmist fram-, eða bakvísandi
Framúrskarandi hliðarvörn – SICT, breiðir og mjúkir, bólstraðir hliðarpúðar.
Þægindi – vandaðir öryggispúðar eru á 5-punkta beltinu.
Aðgengilegar stillingar – höfuðpúði og belti færast samtímis með einu handtaki, einnig er einfalt að stilla breidd stólsins.
Hagkvæmni – áklæðið er hægt að fjarlægja og þvo eftir leiðbeiningum.
ÍSETNING OG ÖRYGGI
Ísetning
Bakvísandi: 3-punkta sætisbelti og neðri belti eða 2-punkta sætisbelti og neðri belti.
Framvísandi: 3-punkta sætisbelti eða 2-punkta sætisbelti.
Ísetningarvísar
Vísarnir segja til um hvort stoðfóturinn sé rétt stilltur. Sætisbeltavísarnir staðsetja 3-punkta sætisbeltið í réttri stöðu á öxl og mjaðmagrind barnsins.
Höggvörn
Djúpir og mjúkir, bólstraðir hliðarpúðar.
Vandaðir öryggispúðar á 5-punkta beltinu draga úr hreyfingu við högg.
Stoðfótur og neðri belti veita aukinn stöðugleika.
Öryggisbelti
5-punkta öryggisbelti sem að stilla má með einu handtaki.
Bakvísandi 9-25 kíló, 5-punkta öryggisbelti
Framvísandi 9-18 kíló, 5-punkta öryggisbelti
Framvísandi 15-25 kíló, 3-punkta sætisbelti ásamt sætisbeltavísum.
Akstursátt
Bakvísandi eða framvísandi frá 9 kílóum allt að 25 kílóum.
LEIÐBEININGAR
Britax leggur áherslu á mikilvægi þess að bílstólum sé komið fyrir á réttan máta samkvæmt leiðbeiningum, til þess að öryggisbúnaðurinn nýtist til hlítar.
Leiðbeiningar varðandi ísetningu (Myndband sýnir eldri útfágu).